Friday, May 21, 2010

Jæja hér með bæti ég upp missi á bloggi seinustu mánuða og set inn fyrir maí, apríl og mars... Er ég ekki dugleg?? Hehe:)

Ísak Andri og Ronja með vatnsblöður í Húsdýragarðinum:)

Litli grallarinn minn. Klifrar ekkert smá hátt, rosa gaman:)

Benedikt og Unnar Freyr að leika við Ísak Andra:)

Sæta parið. Kara Mjöll og Ísak Andri komin í náttfötin, með duddurnar og bangasana sína:)

Þann 3. maí átti ég afmæli:) Jeij. varð 27 ára. Þakka fyrir mig gott fólk. Ekki leiðinlegt að fá afmælisgjafir, hihi... Það komu nokkrir ættingjar og vinir í heimsókn og var til kaka handa þeim sem auðvitað Raggi gerði fyrir mig.

Ásamt því að vera í próflestri reynir maður að eiga tíma með fjölskyldunni. Við eigum marga góða vini sem við reynum að hitta og leyfa krökkunum að leika sér. Við fórum í Fjölskyldu og húsdýragarðinn eina helgina með Haffa, Vilborgu og Ronju sætu:) Það var sko ekki leiðinlegt að sjá selina, lömbin og öll hin dýrin. Svo eru kastalarnir og leiktækin skemmtileg og okkur fannst öllum rosalega skemmtilegt. Alltaf gaman að eyða tíma með góðu fólki:)
Svo komu Svava og strákarnir hennar í heimsókn til okkar þegar hún var búin með prófin sín:) Ísak Andri var ekkert rosa hrifin af því að þeir væru að leika með dótið sitt en maður þarf að læra að deila. Það er stundum svolítið erfitt...

Telma, Svenni og Kara komu í heimsókn á afmælinu mínu og við fórum svo til þeirra stuttu seinna og borðum með þeim og spiluðum svo um kvöldið. Það var mjög gaman.
Við erum alltaf annað slagið í Grindavíkinn en ekkert rosalega oft og þá hefur maður yfirleitt bara tíma til að hitta fjölskylduna. Vonandi að maður hafi meiri tíma til að hitta vinina í sumar. Það verður samt nóg að gera hjá okkur eins og alltaf.

En núna eru prófin hjá mér búin og ég er að fara að vinna mína vinnu í Eirborgum. Verð reyndar ekki að vinna fulla vinnu en í staðinn er ég að fara að læra helling í sumar. Ætla nefninlega að fara aftur í hjúkkuna í haust þó ég sé að fara að eiga (ofvirk I know...:) Ætla því að læra í sumar þannig að ég sé eiginlega komin með þetta allt þegar barnið kemur í október og svo tek ég bara prófin í des. Er ekki að fara að læra mikið í október og nóvember með nýfætt kríli:) Er komin með stelpu til að kenna mér efnafræði þar sem það fag eyðilagði fyrir mér að komast í gegnum klausus...

Eftir helgi kem ég í Grindavík í 2 daga þar sem ég er að fara í prjóna- og saumaklúbb, 2 daga í röð. Hlakka til að hitta skvísurnar mínar þar sem það er orðið frekar langt síðan. Við Ísak Andri ætlum bara að skilja Ragga eftir í bænum þar sem hann þarf að vinna. Svo ætlar Elvan mín að bjóða mér á hamborgarafabrikkuna í næstu viku í tilefni þess að við erum báðar búnar með skólann og ég átti afmæli. Það verður pottþétt gaman. Þannig að nóg skemmtilegt hjá mér framundan:)

Lítið talað um Ragga greyið, hehe;) En hann er auðvitað að sinna sinni vinnu og duglegur að vera æðislegur við mig svo ég geti lært og þeir feðgar eiga góðan tíma saman á meðan. Reynum samt alltaf að eiga einhvern tíma saman sem er miklu auðveldara núna eftir skólann hjá mér. Erum líka farin að hreyfa okkur enn meira en vanalega og hugsa betur um heilsuna svo við getum verið að gera skemmtilega hluti sem lengst fram á elliár :)

En í Maí var það gærdagurinn sem stóð upp úr!
Fórum í vorferð með Ísak Andra og leikskólanum og það var æði:)
En fyrr um morguninn fórum við í 20 vikna sónar...
Allt leit eðlilega út og við fengum að vita að við eigum von prinsessu þann 6. okt:)
Ótrúlega spennandi að hugsa til þess:) Þurfum því að fara að hugsa mikið bleikt núna...

4 comments:

Anonymous said...

frábært að heyra að allt gangi svona vel:) og innilega til hamingju með litlu stelpuna :) Heyrðu ég held að við eigum nú inni hjá ykkur skuthjúunum heimsókn er það ekki??? komin tími á hitting :) en hlakka til að sjá ykkur Ísak Andra á mánudaginn:)

Anonymous said...

gleymdi Kveðja Sara:)

Ósk og Raggi said...

Jú þið eigið alveg inni heimsókn;)

Anonymous said...

Það er alltaf jafn gaman að fá að vita kynið :) Til lukku með litlu dömuna ykkar.
Ég hitti kannski eitthvað á ykkur um sjómannahegina í grindavík :)
Annars gangi ykkur bara rosa vel

KV. Anna Lilja