Sunday, November 30, 2008

1. í aðventu

Það er svo gaman:)
Halló mamma og pabbi.

Halló. Vá hvað tíminn líður hratt. Það er kominn fyrsti í aðventu og ekki nema 24 daga í jól:)


Ég er bara farin að hlakka til jólanna. Við erum búin að skreyta allt, kaupa cirka helming af jólagjöfunum og Raggi búin að baka smákökur. En við ákváðum að skreyta snemma þar sem ég er bara að læra og læra þessa dagana. Er meira segja bara hjá mömmu að læra því ég hef svo mikið næði þar... Fer í tvö próf í vikunni og svo er síðasta prófið 16. des. Lesturinn gengur bara mjög vel:)


Annars er ég aðeins búin að ná að taka myndir fyrir Steina bró af krökkunum hans fyrir jólakortið. Er einmitt að fara í afmæli þangað á morgun. Kjartan Árni er að verða 7 ára. Talandi um að tíminn líði hratt... 7 ár síðan ég sá hann koma í þennan heim. Magnaðasta upplifun lífs míns fyrir utan að eignast barn sjálf. Það er yndislegt að vera viðstaddur fæðingu.


Ég kíkti aðeins í partý til Söru og Kobba á föstudaginn. Það var rosa gaman. Ég stoppaði stutt þar sem ég er í próflestri og þurfti að vakna snemma á laugardag og lesa. Við vorum svo í 1 árs afmæli hjá Helenu hans Valda í gær. Það styttist óðum í að við höldum barnaafmæli. Ég gaf henni jólasveinahúfu sem ég prjónaði sjálf. Hún er ekkert smá flott! Ég er allavegana rosalega ánægð með hana þar sem ég er ekki búin að prjóna neitt að ráði í langan tíma og aldrei farið eftir uppskrift. Nú er næst á dagskrá að gera aðra á Ísak Andra og Evu Maríu. Hún eignaði sér húfuna hennar Helenu:) En ég hef nægan tíma milli prófa og jóla til að prjóna.


Það er ágætt að frétta semsagt. Ísak Andri farin að sofa betur en hann vaknar samt alltaf mjög snemma. Það er bara hann. Maður verður bara að venjast því. Það er svosem allt í lagi ef maður fær að sofa nánast óslitið á nóttinni. Hann er bara sætur þegar hann er að rumska... Maður heyrir í honum, fer inn í herbergi og þá situr hann og er hálfsofandi að leita að snuðinu sínu. Svo leggjum við hann niður aftur með snudduna og þá er hann dottinn út með það sama:) Svo hef ég gleymt að setja það inn á bloggið að dúllan okkar er farin að segja mamma (þónokkuð síðan það var) og svo segir hann líka nei og babba stundum:) Það er æðislegt að heyra hann segja þessi fáu orð sem hann kann. Hann spjallar þó heilan helling í viðbót. Við bara skiljum það ekki.


Nú ætla ég að halda áfram að læra:)

Kveðja Bjartsýna og jákvæða Ósk:)

6 comments:

Anonymous said...

Líst rosavel á þessa bjartsýni þína Ósk :) svona á maður að tækla prófin hehe

Anonymous said...

úbbs....hahaha gleymdi að kvitta ;) Elva

Anonymous said...

LOVE YOU ÍSAK :) knús á ykkur öll

Anonymous said...

Dugnaður í þér mín kæra. Gangi þér vel í próflestrinum en vonandi sjáumst við í afmælisveislu hér á sunnudaginn, ef þið komist en ég skil vel ef þú ert upptekin ;o)

kv. Kiddý og co.

Anonymous said...

gangi þér vel að tækla prófin skvísa. hef trú á þér;) annars er hann ísak andri algjör æðibiti enda ekki að ásæðulausu sem hann var valinn sem tendasonur;) híhí.. hringi í þig á morgun mín kæra...

Kv. Telma, bóndinn og Litla kærastan..

Anonymous said...

gott að vita að það gengur vel. mér finnst æðislegt að hann sé farin að tala smá vá hvað tíminn líður hratt hann kominn á 10 mánuð.....! annars er ég bara að kvitta fyrir mig og segja gangi þér vel í prófunum.
kv Lilja C