Friday, April 27, 2007

hæhæ. Ég er komin með eina æfingu af planinu í þessarri viku. En svo labbaði ég í vinnunna í gær. Held það séu 6 km. Við löbbuðum tvær saman og við vorum í klukkutíma. Það tók lúmskt á skal ég segja ykkur en rosalega vorum við ánægðar með okkur þegar við mættum ferskar efir sturtuna í miðasöluna og allir voru með koddafarið í andlitinu. Þannig að tæknilega séð er ég komin með tvær æfingar... Svo er ég að fara í fyrramálið líka.
Matarræðið gengur betur líka þannig að allt er uppleið hjá mér nema vigtin. Hún sýnir 64.5 sem eru mínus 700gr. frá því síðast. Mig minnir allavegana að hún hafi sýnt 65,2 þá:)
Skrifa næst á sunnudag líklegast.
Góða helgi og góða nótt!

3 comments:

Hilmar Kjartansson said...

hæ hæ
Gott að heyra að þú ert að reyna áfram Ósk. Ég er búinn að reyna að hringja nokkrum sinnum í þig en ekki gengið eftir. Ég sendi þér því e-mail í staðinn og reyni að hringja aftur í þig. Kv. Hilmar

Unknown said...

sæl
vonandi gengur vel hjá ykkur, látið mig vita í þesssari viku hvort við eigum að halda þessum tíma 11 maí eða færa hann aftar.

kv Svanur

Ósk og Raggi said...

Ég kemst 11. maí. Kl hvað og hvenær?? Raggi kemur ekki með.