Wednesday, August 5, 2009

Meira í Júlí... Ágúst kemur seinna:)

Komiði sæl sem nennið að lesa þetta blogg:)
Gaman að einhver nennir því og æðislegt þegar einhver nennir að kvitta!!
Við erum að hafa það rosalega gott og erum mjög ánægð hér í voginum. Svolítið mikið að gera hjá okkur og maður væri svosem alveg til í meiri svefn...en sefur maður ekki bara þegar maður er gamall. Hef heyrt því fleygt:)
Við erum búin að vera að vinna allan júlímánuð og Ísak Andri ekki enn kominn í vistun en þá hef ég þurft að vaka svolítið eftir vaktirnar mínar með honum og tekið svo bara lúr í rúminu okkar með hann, sem er voða kósý:) En mamma og Unnur Perla eru svo miklar Perlur, hehe að þær hafa komið til okkar nokkrum sinnum og hjálpað til með litla brjálæðinginn þannig að ég hef getað farið að sofa beint eftir vakt. Ég er endalaust þakklát fyrir þessa hjálp og sé vel hvað það er gott að eiga góða að. En núna á ég bara 4 vaktir eftir í ágúst og tek líklega ekki nema 3. hverju helgi með skólanum, svona til að vinna eitthvað...
Annars erum við búin að vera njóta sumarsins og farið mikið í sund og niðrí bæ að njóta þess að vera til. Fórum líka tvisvar í heiðmörk í júlí með góðu fólki og það var alveg frábært:)
Nú stefnum við á ferðalag á morgun og verðum framyfir helgi líklegast. Erum að fara austur á Djúpavog og svo á ættarmót í Berufirði. Þetta er hjá afkomendum Þórhöllu ömmu og hennar systkinum. Þetta er fyrsta tjaldútilegan okkar með Ísak Andra. Hann hefur haft það svo fínt hingað til því hann hefur bara farið í sumarbústaði, nokkrum sinnum meira segja. En við hlökkum mikið til að fara og höfum nýtt vel útsölurnar á útileguvörum og erum orðin vel stæð fyrir næsta sumar. Þá verður maður ekki svona sorglegur í þessum útilegum og fer kannski oftar en einu sinni yfir allt sumarið, hahaha:)
Við vorum að vinna um verslunarmannahelgina en létum verða af því að fara í fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Fórum með Steina og börnunum hans og Valda og co. Svo var mamma auðvitað með ungunum sínum líka. Það var rosalega gaman. Svolítið margir en það var samt í lagi. Ísak Andra fannst ekki leiðinlegt að sjá öll þessi dýr og það var æðislegt að fylgjast með honum:)
En þrátt fyrir að það sé mikið að gera hjá okkur og maður sé nú ekki að ná að sinna öllu eins vel og maður vildi, eins og hitta alla vini sína reglulega, þá er ég búin að vera ansi dugleg að sinna sjálfri mér. Get stolt sagt frá því að ég er búin að vera dugleg að fara í ræktina og hugsa um heilsuna. Svo er ég alltaf að prjóna og taka myndir þegar ég get. Er samt alveg til í að fara að bæta við mig þekkingu á myndavélina og taka meiri framförum, en góðir hlutir gerast hægt og maður verður betri með tíma og æfingu:) Ekki nóg með að vera komin með þessi 2 áhugamál (átti engin áhugamál fyrir 1 ári sirka!) þá get ég ekki hætt. Núna er ég að fara að læra á gítar og gaf Raggi mér eitt stykki gítar í gær:) Það verður gaman að geta spilað fyrir krakkana og við fleiri tækifæri kannski. Er allavegana voða spennt fyrir þessu...
Núna fer fljótlega að komast regla á lífið hér eins og annars staðar býst ég við eftir sumarið. Ísak Andri byrjar hjá dagmömmu í næstu viku sem hann verður hjá þar til hann kemst á leikskóla og ég fer að byrja í skólanum í lok ágúst! Bara spennandi að fara í hjúkkuna:) Það verður örugglega svolítið strembið í vetur hjá mér en maður klárar sig alveg af því. Þarf að fá ákveðna meðaleinkunn til að komast áfram á næstu önn, en ég hugsa að ég hafi nú alveg það sem þarf til þess.
Þá er komið gott af þessu... set inn nýtt blogg eftir ættarmótið...
Þar til seinna, Ósk pollýanna.


Í húsdýragarðinum... Við ætlum þangað!!

að var ekkert smá gaman að sjá öll dýrin:)

Skemmtilegur hópur sem skellti sér saman, vantar samt Steina, Kjartan Árna og Æsu Maríu. Og mig reyndar líka, ég er alltaf á bak við myndavélina og það er eins og ég fari aldrei með í neitt...

6 comments:

Unnur Perla said...

Flott familía eins og alltaf =) já Ósk þetta reddast alltaf þegar maður á góða að !! :) vonandi fæ ég samt að passa hann fljótt aftur... love Unnsa

Hilmar Kjartansson said...

hæ hæ
flott að geta áfram lesið bloggið hjá þér og skoðað myndir. Mér finnst þetta miklu skemmtilegra en facebook verð ég að segja.
Gangi þér vel að læra á gítarinn, ég var reyndar að velta því fyrir mér að læra á gítar eða spænsku á meðan ég er í útlegð í Dunedin....eða kannski bara spænska gítartónlist....jeminn hvað ég er sniðugur.

Anonymous said...

æði að heyra að allt gangi svona vel hjá ykkur hafið það gott og hlakka til að heyra frá þér vonadni fljótlega knús á ykkur kv Rósa Kristín

Anonymous said...

æði að heyra að allt gangi svona vel hjá ykkur hafið það gott og hlakka til að heyra frá þér vonadni fljótlega knús á ykkur kv Rósa Kristín

Anonymous said...

hæhæ... Gaman að heyra hvað gengur vel hjá ykkur... Og vonandi eigum við kanskli eftir að skella okkur saman í útilegu næsta sumar... Góða helgi og hafið það gott í útilegunni heyrumst svo vonandi fljótlega ! kv Sara

Anonymous said...

Hæhæ
vildum bara kasta á ykkur kveðju :)
Kíki alltaf reglulega hér inn til að fá fréttir af ykkur. :)
Gott að gengur vel :)

KV. Anna Lilja